
Unglingastarfið í Zelsíuz er sameiginlegt fyrir alla grunnskóla sveitarfélagsins. Það fer fram að mestu í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar og eru alltaf á kvöldin. Á þriðjudögum fer starfið fram á Stokkseyri.
Í útibúinu í Stekkjaskóla er opið tvö kvöld í viku, þriðjudaga og fimmtudaga. Markmið er að hafa fjölbreytni í dagskrá Zelsíuz til þess að ná til sem flest. Unglingaráðið skipuleggur dagskránna og hjálpar til við undirbúning á hinum ýmsu viðburðum.
Opnunartímar
Mánudagur kl. 19:30 - 22:00
Þriðjudagur kl. 19:30 - 22:00 í Stekkjaskóla og á Stokkseyri
Miðvikudagur kl. 19:30 - 22:00
Fimmtudagur kl. 19:30 - 22:00 í Stekkjaskóla og Hinsegin opnun í Pakkhúsinu
Föstudagar kl. 19:30 - 22:00
Dagskrá í Zelsíuz
Dagskrá í Stekkjaskóla
Aðgangsheimild



