Search
Sumarfrístundarnámskeið Eldheima eru í boði í 6 vikur í sumar og er hver vika fyrir sig með visst þema.
Fyrsta námskeiðið hefst þann 10. júní n.k. Hver vika verður skipulögð fyrir sig og mun plan fyrir komandi viku ávallt koma inn vikunni áður í tölvupósti til foreldra barna sem eru skráð svo hægt verði að sjá gróft plan á komandi viku.Það verður mikil útivera í sumar og er því mikilvægt fyrir foreldra og forráðamenn að skoða plan vikunnar svo börnin mæti ávallt með föt eftir veðri og sundföt þegar á því þarf að halda. Börnin þurfa að hafa með sér 3 skammta af nesti alla daga,…
Félagsmiðstöðin Zelsíuz í samvinnu við velferðarþjónustu Árborgar hefur lyft grettistaki við að rjúfa félagslega einangrun barna og unglinga og stuðla að því að þeir verði virkir þátttakendur í félagsstarfi
Frá því að samstarfsverkefnið hófst árið 2016 hafa um 70% barna eða unglinga sem sótt hafa úrræðið skilað sér inn í frekara félagsstarf.
Verkefnið sýnir vel hvað þverfaglegt samstarf í anda nýrrar löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsæld barna er mikilvægt til að koma til móts við börn og unglinga, eins snemma og unnt er.
Þetta er í fyrsta sinn sem…
Í Zelsíuz er boðið upp á fjölbreytt og öflugt starf sem sniðið er að grunnskólanemendum á miðstigi í hverjum skóla fyrir sig.
Opnunartímar
Mánudagur kl. 17:00 - 18:30 í Sunnulækjarskóla
Þriðjudagur kl. 17:00 - 18:30 á Stokkseyri
Miðvikudagur kl.17:00 -18:30 í Vallaskóla
Fimmtudagur kl.17:00 - 18:30 í Stekkjaskóla
Einu sinni í mánuði eru 7.bekkjarkvöld í Zelsíuz (Austurvegi 2A) fyrir 7.bekk úr Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Stekkjaskóla og BES
Dagskrá í desember
Unglingastarfið í Zelsíuz er sameiginlegt fyrir alla grunnskóla sveitarfélagsins. Það fer fram að mestu í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar og eru alltaf á kvöldin, 4 sinnum í viku. Á þriðjudögum fer starfið fram á Stokkseyri. Markmið er að hafa fjölbreytni í dagskrá Zelsíuz til þess að ná til sem flest. Unglingaráðið skipuleggur dagskránna og hjálpar til við undirbúning á hinum ýmsu viðburðum.
Opnunartímar
Mánudagur kl. 19:30 - 22:00
Þriðjudagur kl. 19:30 - 22:00 (Starfið fer fram á Stokkseyri)
Miðvikudagur kl. 19:30 - 22:00
Föstudagar kl. 19:30 - 22:00…
Okkur í Eldheimum langaði að þakka kærlega fyrir seinustu mánuði. Við erum bara rúmlega þriggja mánaða frístundaheimili en finnst starfið okkar ganga vonum framar og erum mjög þakklát fyrir alla þolinmæði sem þið hafið sýnt okkur á meðan við byggjum upp frábæra starfsemi.
Þetta er vissulega ævintýri að sameina 3 skóla undir einu þaki og mun aldeilis vera langhlaup en ekki spretthlaup að pússa okkur öll saman.
Desember mánuður fór að miklu leyti í að skreyta og njóta saman.
Í desember mánuði vorum við líka með Góðgerðardag með nágrönnum okkar í Kotinu þar sem foreldrar og…
Opnunartími: mán.- fim.: 06:30 - 21:00,föstudaga: 06:30 - 19:00,laugard. - sunnud.: 09:00 - 18:00Opening hours: Mon. - Thur.: 06:30 - 21:00,Fridays: 06:30 - 19:00,Saturday - Sunday: 09:00 - 18:00
Zelsíuz býður upp á fjölbreytt klúbbastarf fyrir 8.-10.bekk
D&D klúbbur
Hlutverkaspilið Dungeons and Dragons er spilað í 6-7 manna hópum sem að starfsmaður leiðir söguna. Spilað er á miðvikudögum kl 17-19
Hlekkur að facebook hóp klúbbsins er hér
8.bekkjarklúbbur
Það eru tveir klúbbar fyrir 8.bekk. Bjarts og Arons klúbburinn og Hallgerðar og Weroniku klúbburinn. Klúbbarnir eru annan hvern þriðjudag kl 19:30-21:30. Hámark 15 geta verið í hverjum klúbb. Klúbbarnir gera dagsrká fyrir veturinn í samráði við starfsmenn. Hægt er að sækja um í klúbbinn hér.
9-10.…
Í Pakkhúsinu er klúbbastarf fyrir 16-25 ára ungmenni
Sendið okkur tölupóst á netfangið hlynurh@arborg.is til þess að skrá í D&D hóp
D&D klúbbur
Hlutverkaspilið Dungeons and Dragons er spilað í 6-7 manna hópum sem að starfsmaður leiðir söguna.
Mánudagar: 16:30-19 og 19-21Fimmtudagar: 16:30-19, 17-19:30 og 18-20:30Laugardagar: 14-17, 15-18 og 18-21Sunnudagar 14-17 og 15-18
Nóvember var mjög skemmtilegur hjá okkur og við erum byrjuð að undirbúa jólin á fullu. Börnin eru byrjuð að perla og lita alls konar jólalegt og við keyrum svo jólastemninguna á fullt í desember.
Föstudagskaffi
Þann 22. nóvember kusu börnin um föstudagskaffi og varð niðurstaðan að hafa kringlur og kakó í föstudagskaffinu 29. Nóvember. Það sló heldur betur í gegn og var gaman að sjá hvað börnin voru spennt fyrir kaffinu sem þau völdu. Næsta föstudagskaffi verður hins vegar ekki á föstudegi, en við höfum það fimmtudaginn 19. desember þar sem það er seinasti…
Október var skemmtilegur mánuður hjá okkur í Kotinu. Við föndruðum Halloween dót og skreyttum Kotið með hræðilegum skreytingum. 31. október þá var svo sannarlega skemmtilegur dagur í Kotinu þar sem við bjuggum til einskonar draugahús í einu rýminu hjá okkur. Ævar rútubílstjóri skutlaði flestum börnunum í Kotið þar sem hann var búin að skreyta rútuna í hrekkjavökuþema. Börnin komu síðan í Kotið í glæsilegum búningum og svo opnuðum við rýmið þar sem var óhugnaleg tónlist í gangi í draugahúsinu. Síðan fengu börnin hrekkjavöku nammipoka og gerðum okkur góðan dag í Kotinu öll saman.
English…