Sumarsmiðjur verða í gangi frá 15. júní til 17. júlí
Það þarf að skrá þátttakanda á hverja einustu smiðju eða heilan dag, þegar á við.
Fyrirkomulag smiðjanna er eftirfarandi:
• 9:00-12:00 smiðja 1
• 12:00-13:00 hádegishlé
• 13:00-16:00 smiðja 2
Þátttakendur geta skráð sig í staka smiðju eða heilan dag.
• Verð fyrir staka smiðju er 1500 kr.
• Verð fyrir heilan dag/ferð er 3000 kr.
Skráning fer fram á sumar.vala.is -
Fjöldatakmarkanir eru í hverja smiðju og opnað verður fyrir skráningu 1. júní.
Skráning í smiðjurnar lýkur á miðnætti fimmtudags í vikunni á undan þeirri viku sem smiðjan fer fram.
Afskráning: Mikilvægt er að afskrá sem fyrst svo hægt sé að taka inn af biðlista. Afskráning lokar kl. 9:00 degi fyrir smiðju. Ef afskráning berst ekki fyrir þann tíma verður tekið gjald fyrir smiðjuna. Afskráning fer sömuleiðis fram á https://sumar.vala.is/#/login eða í gegnum tölvupóstinn hér fyrir neðan
Allar spurningar skal senda á ari.sverrir@arborg.is
S: 8415905