Sumarlestur Bókasafns Árborgar Selfossi
hefst með prompi og prakt þann 16. júní
þegar við fáum Sævar Helga Bragason í heimsókn!
Sumarlestur er fyrir börn á aldrinum 8-11 ára, þátttakendur mæta kl. 11 eða kl. 13 eftir því sem hentar þeim betur og hvert skipti stendur yfir í u.þ.b. klukkutíma.
Við fáum gesti, tökum þátt í happdrætti, föndrum og fyrst
og fremst verður stuðlað að því að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum.
Þátttaka er ókeypis.
Skráning er nauðsynleg en mæting er alveg frjáls,
t.d. ef þátttakandi kemst bara í suma tímana.