Search

Það var mikið fjör í október og starfið okkar snerist mikið um hrekkjavökuna þennan mánuðinn. Föndur Við föndruðum meðal annars leðurblökur, skrímsli og grasker til að undirbúa okkur fyrir hrekkjavökuna. Við lituðum líka skemmtilegar myndir. Hrekkjavakan Þann 31. október var hrekkjavakan sjálf og við gerðum okkur glaðan dag hér í Bjarkarbóli. Börnin og starfsfólkið voru í glæsilegum búningum og búið var að skreyta frístundaheimilið vel. Við byrjuðum á hrekkjavökukaffitíma þar sem börnin fengu djús og rúsinur með matnum. Síðan buðum við upp á…
Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi, USSS fór fram síðastliðinn föstudag, 14. mars og var stemningin rafmögnuð þegar ungir og hæfileikaríkir keppendur stigu á svið. Fyrir hönd Zelsíuz tók Hugrún Hadda þátt með lagið Is It True, sem Jóhanna Guðrún gerði frægt í Eurovision árið 2009. Með mögnuðum flutningi sínum heillaði Hugrún dómnefnd og áhorfendur og tryggði sér farseðil í sjálfa Söngkeppni Samfés, sem fer fram í Laugardalshöll þann 3. maí. Þar mun hún keppa á meðal hæfileikaríkra ungmenna frá öllum landshornum, en keppnin verður einnig sýnd í beinni útsendingu á RÚV.…
Meginmarkmið frístundaheimila Árborgar er aðbörnunum líði vel og fái notið sín í frjálsumleik í öruggu umhverfi. Sækja um Starfstöðvar Engar nidurstodur Opnunartími Starfsemi í Frístundaheimilinum Árborgar hefst kl. 13:00 alla daga að hefðbundnum skóladegi loknum og stendur yfir til kl. 16:15 á daginn. Almennar upplýsingar Frístundaheimili Árborgar eru þjónusta ætluð börnum í 1.-4. bekk. Hvert heimili fyrir sig er ætlað nemendum sem sækja nám í tilteknum skóla. Bifröst fyrir nemendur…
Alla fimmtudaga eru hinsegin opnanir fyrir 8.-10.bekk og eldri í Árborg í samstarfi við Pakkhúsið. Markmiðið með hinseigin opnunum er að ná til unglinga og ungmenna sem tilheyra hinsegin samfélaginu, eru í hinsegin pælingum eða styðja við hinsegin samfélagið. Þau sem að mæta á opnanirnar ráða sjálf hvað er á dagskrá. Hinsegin opnanirnar eru í Pakkhúsinu. Opnunartímar Fimmtudagur kl. 19:30 - 21:30 Dagskrá janúar
Æskulýðsfélag Selfosskirkju er fyrir alla krakka í 8. – 10. bekk grunnskóla. Á fundum finnum við okkur alltaf eitthvað skemmtilegt að gera. Varúlfur, hjartsláttur og varúlfafeluleikur eru fastir liðir í starfinu, en auk þess er Just Dance, Minute to win it og Subbufundur á dagskránni, svo fátt eitt sé nefnt. Fundir eru á mánudögum kl. 20:00-21:30, þátttaka er ókeypis og skráning fer fram inni á heimasíðu kirkjunnar, selfosskirkja.is Starfið er ekki bundið við ákveðið upphaf eða endi, svo krakkar geta byrjað í Æskó á miðjum vetri þess vegna.
Fjölbreyttar æfingar fyrir börn á aldrinum 9 - 12 ára. Æfingar henta bæði börnum sem eru stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt sem og þeim sem eru nú þegar með grunn. Lögð er mikil áhersla á líkamsvitund, styrk og þol. Einnig er lögð áhersla á liðleika og snerpu. Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 14:30 - 15:20. Verð: 55.400 kr. (1. sept - 10. des). *hægt að dreifa greiðslum og nota frístundastyrk.
Starfsemi Selurinn er opinn á mánudögum og fimmtudögum frá kl 17:00-18:30. Selurinn er ætlaður fólki með fötlun á suðurlandi og þurfa notendur að hafa náð 16 ára aldri. Dagskrá er unnin í samstarfi við notendur og er gefin út mánaðarlega. Ásamt dagskránni eru ýmsir viðburðir eru á dagskrá yfir árið eins og jeppaferð, jólahátíð o.fl. Markmið Selsins er að efla félagsfærni og stuðla að virkni í félagsstarfinu sem og á eigin frítíma. Áhersla er lögð á að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir notendur til að taka þátt í öflugu félagsmiðstöðvarstarfi. Aðstaðan Selurinn er…
Fimmtudaginn 28. desember fór fram hin árlega uppskeruhátíð fræðslu- og frístundarnefndar Árborgar. Þó nokkur fjöldi fólks var mættur til þess að fagna með því flotta íþróttafólki sem við höfum hér í Árborg. Feðginin í Fljúgandi villisvín opnuðu hátíðina með glæsilegu tónlistaratriði en í kjölfarið hélt Brynhildur Jónsdóttir formaður fræðslu- og frístundarnefndar setningarræðu.  Hvatningarverðlaunin þetta árið hlaut Félagsmiðstöðin Zelsíuz fyrir það flotta starf sem þar er unnið. Vinnan í félagsmiðstöðinni hefur hlotið verðskuldaða athygli víða um land og hlaut hún í…
Á haustönn 2024 bjóðum við upp á eftirfarandi námskeið: - Barnadans fyrir 4-5 ára - Jazzballett fyrir 6-16 ára - Leiklist fyrir 9-15 ára - Fullorðinstímar fyrir 30 ára og eldri Nemendur í jazzballett 6-16 ára geta svo valið um að bæta við sig valtímum og æft 2-5x í viku. Einnig geta nemendur 9-16 ára sótt um að komast í keppnislið skólans, TeamDansakademían. Markmið okkar er að skapa gott og skapandi umhverfi fyrir nemendur á hvaða getustigi sem er til að vaxa og dafna. Við viljum skapa stuðningsríkt samfélag í kringum Dansakademíuna, þar sem maður eignast nýja vini og skapar ævilangar…
Sækja um Viðburðir Sjá alla viðburði Frístundaheimilið Stjörnusteinar er frístundaheimili fyrir börn í 1.- 4. bekk í Barnaskólanum á Eyrarbakka á Stokkseyri sem hefur starfað síðan árið 1997. Stjörnusteinar hafa aðstöðu sína í gamla skólahúsnæðinu á Stokkseyri við Eyrarbraut 2 og er þar pláss fyrir 35 börn. Lesa meira Fréttasafn…